15.06.1918
Efri deild: 45. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í B-deild Alþingistíðinda. (770)

75. mál, heimild til ráðstafana út af Norðurálfuófriðnum

Forseti:

Út af orðum háttv. 2. þm. G. K. (K D.) um atkvæðagreiðsluna skal jeg geta þess, að jeg er honum sammála um, að bera skuli undir atkv. hvern lið fyrir sig í brtt. þessari, sem er 3 í liðum.

Og verði 1. liður hennar samþyktur, þá fellur niður frvgr. á þgskj. 341, en verði sá liður feldur, verður hún að standa.