08.07.1918
Efri deild: 60. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í B-deild Alþingistíðinda. (818)
109. mál, kaup landsstjórnarinnar á síld
Fjármálaráðherra (S. E):
Eftir upplýsingum, sem stjórninni hafa borist með símskeyti, skal jeg láta þess getið, að jeg sje mjer fært að taka aftur brtt. 1., a.b. á þgskj 468.
Aftur á móti mun jeg halda fast við brtt. 2, á sama þgskj., sem fer fram á að lengja gjaldfrestinn. Samkvæmt frv. er gert ráð fyrir að fyrri helmingurinn verði borgaður fyrir lok októbermánaðar, en hinn síðari fyrir árslok.
En jeg lít svo á, að slíkir skilmálar geti orðið mjög erfiðir og ef til vill ókleifir fyrir landssjóð, og hefi jeg því leyft mjer að fara fram á í brtt., að fyrri helmingurinn verði greiddur fyrir árslok, en hinn síðari fyrir 1 júlí næstkomanda.
En auðvitað helst það ákvæði 6. gr. eftir sem áður, að verðið greiðist seljendum jafn ótt og það kemur inn, þótt fyr verði en ákvæði þessi segja til.
Þetta er því ekki annað en varasemi, sem nauðsynleg er fyrir landssjóð.
Jeg sje svo ekki ástæðu til að endurtaka það, sem jeg hefi áður sagt við fyrri umr. málsins, en vil að eins með tilvísun til þess, mæla með því, að þessi brtt. verði samþykt.