11.07.1918
Neðri deild: 68. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 858 í B-deild Alþingistíðinda. (846)
109. mál, kaup landsstjórnarinnar á síld
Pjetur Ottesen:
Það getur verið, að málið sje þannig vaxið, að ekki sje hægt að skýra frá því opinberlega. En mjer finst, að fleirum en háttv. bjargráðanefnd ætti að standa til boða, að vita um þá samninga, sem þegar eru gerðir eða þá drög til samninga, sem fram eru komin og fyrir liggja. Jeg fyrir mitt leyti vil fá að vita þetta, og svo mun því vera varið með fleiri.
Atkv. manna getur oltið á því, hvernig samningum er komið, og verð jeg því að telja sjálfsagt, að mönnum sje gefinn kostur á að kynnast þeim. Að vera að halda þessum samningum leyndum fyrir þingmönnum er öldungis óviðeigandi.