12.07.1918
Neðri deild: 69. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 869 í B-deild Alþingistíðinda. (856)

109. mál, kaup landsstjórnarinnar á síld

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg vil að eins lýsa yfir því, að jeg sje mjer ekki fært að taka brtt. mína aftur. Jeg heyrði nú ekki, hvað háttv. þm. S -Þ. (P. J.) sagði gegn henni, en sje hins vegar ekki ástæðu til að endurtaka alt það, sem jeg hefi áður sagt um þetta atriði, bæði í háttv. Ed. og hjer í þessari háttv. deild, og mun því vísa til þess, og leyfi mjer að mælast til, að till. verði samþ.