14.06.1918
Efri deild: 44. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í B-deild Alþingistíðinda. (95)

4. mál, almenn dýrtíðarhjálp

Fjármálaráðherra (S. E):

Jeg vil að eins benda á það, áður en gengið verður til atkv., að verði brtt. á þgskj. 355 samþ., þá eru það 12 kr. 50 aur. 90.000 sinnum eða ein miljón hundrað tuttugu og fimm þúsund krónur, sem landssjóður getur komið til með að verða að láta úti, og er það margfalt meira fje en svo, að. landið beri slík útgjöld.