08.09.1919
Neðri deild: 58. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 383 í B-deild Alþingistíðinda. (112)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Frsm. fjárveitinganefndar (Bjarni Jónsson):

Jeg hefði betur skilið þessa athugasemd hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) ef hún hefði hljóðað á þá leið, að stjórnin hefði þegar fallist á þetta ráð mitt, og sæi hún sjer ekki fært að fylgja því fram, þá teldi hún sjer ekki unt að stjórna lengur landinu.