21.07.1919
Efri deild: 12. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1385 í B-deild Alþingistíðinda. (1169)
25. mál, lögreglusamþykktir fyrir kaupstaðina
Halldór Steinsson:
Hæstv. forsætisráðh. (J. M.) hefir ekki tekið rjett eftir orðum mínum. Jeg nefndi það ekki, að verðfall peninga væri ekki talið sem aðalástæða í athugasemdunum við frv. Hitt lagði jeg áherslu á, að þess væri hvergi getið, að þetta væri bráðabirgðalög.
Það er að vísu rjett, að 100 kr. voru 1800 vart minna en 500 kr. eru nú. En þetta hlýtur að breytast, og eftir 10–20 ár verður gildi peninga ef til vill tvöfalt við það, sem það er nú.