19.09.1919
Efri deild: 60. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 404 í B-deild Alþingistíðinda. (128)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg held, að hv. þm. Snæf. (H. St.) hafi ekki athugað, að þessi eina milj., sem hann talaði um. nær að eins yfir annað árið, svo það er rjett, sem jeg sagði, að það verða 2 milj. á fjárhagstímabili. En auðvitað er þetta ekki nákvæmt, því það fer nokkuð eftir þeim verðstuðli, sem lagður er til grundvallar, en hann er breytilegur.