22.07.1919
Neðri deild: 13. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1665 í B-deild Alþingistíðinda. (1399)
66. mál, aðflutningsgjald af salti
Frsm. (Einar Árnason):
Fjárhagsnefnd flytur þetta frv. eftir tilmælum hæstv. stjórnar. Og frv. er fram komið af þeim ástæðum, að fyrirsjáanlegt er, að allmikið tap verði á salti því, sem landsstjórnin hefir flutt til landsins. Þess vegna hefir stjórnin farið þess á leit, að lagður yrði innflutningstollur á salt, til þess að fá upp borið tapið. Fjárhagsnefndin hefir fallist á það, og vill því mæla með frv. Annars geri jeg ráð fyrir, að stjórnin gefi allar frekari skýrslur um þetta efni.