26.07.1919
Neðri deild: 17. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1670 í B-deild Alþingistíðinda. (1406)
66. mál, aðflutningsgjald af salti
Frsm. (Einar Árnason):
Fjárhagsnefnd hefir borist erindi frá stjórn Fiskifjelags Íslands, þar sem farið er fram á, að salttollurinn verði ekki hafður hærri en svo, að hallinn á saltversluninni vinnist upp á 4–5 árum.
Beiðni þessa hefir nefndin viljað taka til greina, og mun hún þess vegna fallast á brtt. frá háttv. þm. N.-Þ. (B. Sv.), sem fer í þá átt, að fyrir „12 kr.“ komi 8 kr.
Aftur á móti er nefndin hikandi við 2. málsgr. þessarar brtt., um það, hve nær lögin skuli falla úr gildi. Henni virtist, að það gæti orðið óþægilegt að binda það fyrirfram við fastákveðinn tíma. Hins vegar ætlast hún til, að lögin standi ekki lengur en verið er að vinna upp hallann, og við það er orðalag frv. miðað. Þetta virtist nefndinni að mundi verða þægilegra í framkvæmd heldur en ákvæði brtt. Jeg verð þess vegna að leggja á móti brtt., að minsta kosti þangað til jeg hefi heyrt flm, færa gild rök fyrir henni.