09.08.1919
Neðri deild: 29. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1764 í B-deild Alþingistíðinda. (1597)
111. mál, greiðsla af ríkisfé til konungs og konungsættar
Pjetur Ottesen:
Jeg skal verða við þeim tilmælum að fara ekki að rökræða mál þetta hjer frekar, þó jeg hins vegar gangi ekki inn á það, að það sje svo helgur dómur, að eigi megi minnast á það, enda finn jeg því síður þörf á því, þar sem ekki hafa verið bornar fram ástæður móti því, sem jeg mælti með brtt. minni. Hins vegar lýsi jeg því yfir, að jeg tek brtt. ekki aftur, og bið hæstv. forseta að láta fram fara nafnakall um hana.
Með því að mótmæli voru hafin gegn því, að nafnakall skyldi viðhaft um brtt., bar forseti það undir atkvæði deildarinnar, og var nafnakallið samþykt með 13 shlj. atkv.