25.08.1919
Efri deild: 39. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1769 í B-deild Alþingistíðinda. (1623)

121. mál, löggilding verslunarstaðar á Mýramel

Guðmundur Ólafsson:

Jeg man ekki til þess, að sagt hafi verið eitt orð um þetta frv., og er það þó komið til 3. umr. Jeg fyrir mitt leyti veit ekki, hvort þessi staður liggur við sjó eða upp til fjalla, og þótt jeg vilji ekki á nokkurn hátt amast við frv., þætti mjer samt fróðlegra að fá einhverja vitneskju um staðinn.