19.08.1919
Neðri deild: 39. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1782 í B-deild Alþingistíðinda. (1666)

128. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Frsm. (Þórarinn Jónsson):

Það er sama að segja um frv. þetta og till., sem nú er nýsamþykt, að samvinnunefnd samgöngumála hefir leyft sjer að taka upp í eitt frv. þau frv., sem vísað hefir verið til nefndarinnar, 4 að tölu, ásamt brtt. og viðaukatillögum við þau. Nefndin hefir gert ýmsar breytingar, en þær koma ekki til tals nú við 1. umr.

Jeg leyfi mjer að óska þess fyrir nefndarinnar hönd, að málið fái að ganga áfram, og sje ekki ástæðu til að eyða fleiri orðum að svo stöddu.