23.08.1919
Neðri deild: 43. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1788 í B-deild Alþingistíðinda. (1673)

128. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Frsm. (Þórarinn Jónsson):

Þetta er örlítil brtt., sem fer í þá átt að stytta fyrirsögn frv. Nefndinni virtist fyrirsögnin vera óþarflega löng, en þessi gæfi fullan skilning á því, sem þarf að taka fram. Því að þegar þessum lögum er flett upp, sjest breytingin á lögunum frá 1913.