28.07.1919
Neðri deild: 19. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1792 í B-deild Alþingistíðinda. (1687)

94. mál, sveitarstjórnarlög

Flm. (Pjetur Ottesen):

Jeg skal ekki hafa langan formála fyrir máli þessu.

Í greinargerð frv. er gerð grein fyrir þessari litlu breytingu, sem reyndar mætti frekar telja sem skýringu á lögunum en breytingu á þeim.

Jeg vil að eins óska þess, að frv. verði, að umr. lokinni, vísað til allsherjarnefndar.