06.09.1919
Neðri deild: 57. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1799 í B-deild Alþingistíðinda. (1704)

94. mál, sveitarstjórnarlög

Frsm. (Pjetur Ottesen):

Eins og framhaldsnefndarálitið ber með sjer, hefir Ed. gert dálitla breytingu á þessu frv. Hún er fólgin í því, að öll lögin frá 1914 hafa verið dregin inn í frv. Breytingu þessa verður nefndin að telja til bóta, og ræður því hv. deild til að samþ. frumvarpið.