01.09.1919
Efri deild: 45. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1806 í B-deild Alþingistíðinda. (1718)

99. mál, forkaupsréttur á jörðum

Frsm. (Sigurjón Friðjónsson):

Þessi hv. deild hefir áður með öðru frv. talið sig fylgjandi efni þessa frv., og er því líklegt, að hún taki því vel. Um afdrif hins fyrnefnda frv. er getið í nál., og þar eru færðar aðalástæður fyrir brtt. nefndarinnar. Eru þær engar efnisbreytingar, heldur stefna að eins að því, að koma betri skipan á frv. og draga úr málalengingum. Væntir nefndin þess, að hv. deild fallist á brtt., meðal annars af því, að þær færa frv. aftur nær því formi, sem deildin hefir áður tjáð sig fylgjandi.