08.09.1919
Neðri deild: 58. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1808 í B-deild Alþingistíðinda. (1723)
99. mál, forkaupsréttur á jörðum
Frsm. (Stefán Stefánsson):
Eins og stendur í framhaldsnál. landbúnaðarnefndar, þá hafa lítils háttar breytingar orðið á frv. í Ed. Eru það að eins formbreytingar, en að efni til er frv. óbreytt. Fyrsta formbreytingin er sú, að inn í 2. gr. eru sett aðalákvæði 6. gr., sem ræða um það, að sje sjálfsábúðarjörð til sölu, og enginn þeirra, sem 1. gr. ræðir um, eigi forkaupsrjett, þá eigi sveitarfjelagið hann, þar sem jörðin liggur, að öðru jöfnu, og auk þess er 7. gr. feld burt, af því að hana mátti álíta sem endurtekningu á því, sem felst í 5. gr. — Nefndin ræður því háttv. deild til að samþykkja frv. með á orðnum breytingum.