11.09.1919
Neðri deild: 61. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1895 í B-deild Alþingistíðinda. (1903)

98. mál, akfærir sýslu- og hreppavegir

Frsm. (Þórarinn Jónsson):

Samgöngumálanefnd hefir athugað þetta frv., eins og það er nú frá hv. Ed. Breytingar þær, sem deildin hefir gert við frv., eru að eins smávægilegar orðabreytingar við 5. gr., en ekki efnisbreytingar. Þær eru að sjálfsögðu til bóta á málinu. Nefndin leggur því til, að frv. verði samþykt eins og það liggur fyrir.