03.09.1919
Efri deild: 47. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1950 í B-deild Alþingistíðinda. (2014)
140. mál, landhelgisvörn
Frsm. (Kristinn Daníelsson):
Í tilefni af umræðum um mál þetta við 1. umr. frv. hefir nefndin leitað álits hv. fjárveitinganefndar um fjárhagsatriði málsins, og fylgir það á þgskj. 639. Þá hefir nefndin enn fremur borið fram brtt. á þgskj. 638, vegna þess að það þótti orka tvímælis, að stjórnin hefði samkvæmt frv. heimild til að taka skip á leigu. Með þessari brtt. er tekinn af allur vafi á því.
Nefndin leggur áherslu á, að mál þetta komist sem fyrst til framkvæmdar, því eins og jeg tók fram við 1. umr., þolir það enga bið, en það getur tekið tíma að fá smíðað nýtt skip, og því er nauðsyn, að stjórnin hafi leiguheimild þá, er felst í brtt.
Jeg hygg, að málið sje svo skýrt og einfalt, að öllum hv. þm. sje það ljóst, og vænti þess að það nái samþykki deildarinnar og þingsins.