16.09.1919
Efri deild: 57. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1975 í B-deild Alþingistíðinda. (2052)

140. mál, landhelgisvörn

Frsm. (Kristinn Daníelsson):

Yfirleitt get jeg verið ánægður með meðferð þessa máls hjer á þingi, eftir öllum atvikum. Þó að ekki sjeu með þessu komnar fullnaðarlyktir á þetta mál, sem ekki verður fyr en landið tekur í sínar hendur alla landhelgisvörnina. Þá er með þessu stigið afdráttarlaust spor í þá átt. Jeg vona, að hv. deild sýni málinu sama velvilja og hingað til.