20.09.1919
Efri deild: 61. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2072 í B-deild Alþingistíðinda. (2242)

152. mál, vörutollur

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg vil mæla með því, að frv. þetta verði samþykt óbreytt hjer í hv. deild, og helst að það fái að ganga nefndarlaust áfram. Frv. er borið fram til að auka tekjur landssjóðs, og mundi tekjuaukinn af því nema um milj. kr. yfir fjárhagstímabilið.