24.09.1919
Efri deild: 64. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2081 í B-deild Alþingistíðinda. (2274)
154. mál, ullarmat
Kristinn Daníelsson:
Jeg vil að eins vekja athygli á því, að þetta frv. er nú mjög breytt frá því, sem það var, þegar það fór frá þessari hv. deild. Launin eru færð niður í 10 þús. kr. En á sama tíma hefir hámark annara launa verið hækkað upp í 10500 kr., svo ekki er rjett samræmi í launastiganum. Sömuleiðis hefir fyrirsögn frv. verið breytt, að mínu áliti óheppilega, því það er undarlegt, ef fyrirsagnir frv. bera það á engan hátt með sjer, hvað í þeim felst.
Af þessu virðist mjer ástæða til að athuga, hvort ekki væri rjett að taka málið út af dagskrá og athuga það betur, en fresta umræðunni.