22.09.1919
Neðri deild: 70. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2118 í B-deild Alþingistíðinda. (2316)
135. mál, húsagerð ríkisins
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg get verið þakklátur hv. fjárveitinganefnd fyrir þær brtt., sem fram hafa komið frá henni, því jeg tel þær nauðsynlegar. Jeg skal ekkert mæla á móti því, að það sje ofvaxið Reykjavíkurbæ að leggja fram fjórðung kostnaðar til landsspítala. En Reykjavík verður að koma sjer upp farsóttaspítala hið bráðasta, og það kemur til að kosta ærið fje. En landsspítalinn tilvonandi verður ekki fremur fyrir Reykjavík en landið í heild sinni, þótt það sje heppilegast, að hann sje reistur hjer, og þá fyrst og fremst vegna háskólans. Að öðru leyti skal jeg ekki fjölyrða um málið.