17.09.1919
Neðri deild: 66. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2147 í B-deild Alþingistíðinda. (2352)

153. mál, aðflutningsgjald af kolum

Einar Arnórsson:

Jeg vildi að eins vekja athygli hv. deildar á þessari brtt. Hún fer fram á að hækka gjald þetta úr 15 kr. niður í 10 kr. Rökin fyrir því, að jeg hefi flutt þessa till. færði jeg við 2. umr. og hirði jeg ekki um að endurtaka nú það, sem jeg sagði þá.