24.09.1919
Efri deild: 64. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2151 í B-deild Alþingistíðinda. (2366)
153. mál, aðflutningsgjald af kolum
Karl Einarsson:
Jeg á brtt. á þgskj. 952, sem fer fram á, að tollurinn verði að eins 5 kr. Jeg lít svo á, að ef verslunin yrði gefin frjáls og tollurinn settur 10 kr., mundu kolin hækka í verði um tollinn, að viðbættum 50% að minsta kosti, eða um 15 kr. Því það er vitanleg venja allra kaupmanna, að gera fyrst ráð fyrir öllum kostnaði og leggja síðan á vöruna vist hundraðsgjald. Af þessu leiðir það, að hækkaður tollur verður sama sem aukinn gróði kaupmanna.
Jeg verð annars, eins og háttv. þm. Ísaf. (M. T.), að vera með því, að núverandi fyrirkomulag haldist, meðan verið er að vinna upp hallann, í trausti þess, að einkasalan verði rekin þannig, að ekki verði óþarflega óhægt að ná í kolin, af því að þeim verði hrúgað upp í Reykjavík. Það er líka öllum hagur að losast við kostnaðinn af umskipunini.
Hallinn af kolaversluninni mun hafa verið áætlaður 1200 þús. kr., en gróðinn af sölunni eftir að stríðið hætti um 200 þús. kr.
Jeg álít það skaðlaust, þó að frv. sálaðist, en hærri en 5 kr. má tollurinn ekki vera.