31.07.1919
Neðri deild: 22. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2180 í B-deild Alþingistíðinda. (2433)

102. mál, atvinnulöggjöf o. fl.

Frsm. (Einar Arnórsson):

Jeg get látið það liggja millum hluta, hvort það er þm. Dala. (B. J.) eða allsherjarnefnd, sem lítið hefir hugsað málið. Við skulum segja, að þm. og nefndin sjeu að því leyti jöfn. En sá er munurinn á honum og nefndinni, að hann lætur alt flakka, eins og leirskáldin, en nefndin hefir vit á að þegja.