16.07.1919
Efri deild: 9. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 597 í B-deild Alþingistíðinda. (262)

38. mál, ríkisborgararéttur

Jóhannes Jóhannesson:

Úr því að hv. ritari nefndarinnar (K. E.) er ekki viðstaddur á fundinum, skal jeg leyfa mjer að vekja athygli á, að nefndin hefir engar efnisbreytingar gert á frv. Nefndin hefir að eins gert fáar og lítilsverðar orðabreytingar. Jeg sje að hv. ritari nefndarinnar er kominn á fundinn og læt honum því eftir orðið.