07.07.1919
Neðri deild: 3. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í C-deild Alþingistíðinda. (2883)

21. mál, landsbókasafn og landsskjalasafn

Forsætisráðherra (J. M.):

Frv. þetta er svo að segja óbreytt, eins og launamálanefnd samdi það, og nægir að vísa til álits þessarar nefndar og ástæðna hennar fyrir frv.

Jeg verð að líta svo á, að þetta mál eigi rjettilega heima í mentamálanefnd, en tel jafnframt sjálfsagt, að hún láti launamálanefnd vita um gang málsins, beri sig saman við hana og vinni með henni. Það er því till. mín, að frv. verði vísað til mentamálanefndar.