14.07.1919
Neðri deild: 7. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í C-deild Alþingistíðinda. (2978)
53. mál, læknishérað í Ólafsfirði
Einar Jónsson:
Jeg er sammála hv. þm. Stranda. (M. P.) um, að þetta frv. eigi að bíða eftir launafrv. Jeg minnist þess, að við áttum í deilu í fyrra um laun lækna. Jeg lagðist þá á móti hækkun taxtans, og mjer er enn illa við hana. Jeg get því ekki annað en glaðst yfir því, að nú virðist sú stefna uppi, að hækka hann ekki. Fyrst er það um taxtann að segja, að hann er ranglátur, og meinar mörgum fátæklingum að leita sjer lækninga, eða neyðir hann til að kaupa heilsuna um efni fram. Taxtinn gerir líka læknishjeruðin misjöfn að gæðum, og laun lækna stopul. Auk þess mundi hækkun hans verða ranglát með tímanum. Hún yrði bygð á dýrtíðinni, en enginn er kominn til að segja, hve lengi hún varir, og því rangt að binda sig við hana.
Annars finst mjer sjálfsagt, að þingið sýni fulla sanngirni í því máli. Það er vandi, svo rjettlátt sje, að taka eitt hjerað fram yfir annað, eða skilja eitthvað út undan. Enginn er kominn til að segja, svo óhlutdrægt sem þyrfti, eða af nægum kunnugleika, á öllum stöðum, sem hjer um ræðir, hvar þörfin er mest; alstaðar er hún, en það er vont að gera upp á milli, hvar hún er brýnust. Þó að háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.) hafi staðið fast í stigreipinu og mælt rösklega fram með sínu hjeraði, þá tel jeg alveg ósagt, hvort heldur ber að bæta úr þar en annarsstaðar, ef ekki verður hægt að fullnægja öllum þörfum.
Jeg skal að endingu geta þess, að jeg mun greiða atkv. á móti því, að vísa þessu máli til allsherjarnefndar. Jeg er sjálfur í nefndinni og vildi helst við það losna, enda hefir nefndin ærið að starfa fyrir, þó ekki bætist á. Auk þess mætti málið vel bíða, þegar þess er gætt, að það er náskylt öðru máli, sem afgreiða verður fyrst.