10.09.1919
Neðri deild: 60. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í C-deild Alþingistíðinda. (2990)
56. mál, skipun læknishéraða o.fl. (Árnessýsla)
Frsm. meiri hl. (Pjetur Ottesen):
Það er í nefndarálitinu tekið fram það, sem þarf í þessu máli. Get jeg því verið stuttorður. Eins og kunnugt er, þá er Árnessýslu skift í 2 læknishjeruð. Og eftir því, sem um er að gera, eru heldur greiðar samgöngur um sýsluna, svo jeg held, að ekki sje neinum sjerlegum anmörkum bundið að ná í lækni, og aðstaðan þarna því mun betri en víða annarsstaðar. Auk þess er annað, það hefir verið mikið talað um Ólaf Ísleifsson í Þjórsártúni hjer í deildinni, nú við 2. umr. fjárlaganna, sem sjerstaklega góðan lækni. Man jeg, að hv. 1. þm. Árn. (S. S.) sagði, að hann gegndi mjög mikið læknisstörfum í Árnessýslu. Má því gera ráð fyrir, að hann bæti talsvert úr þeim læknisskorti, sem kann að vera þar. (S. S.: Hann er ekki skyldur til þess). Það er rjett, að hann er ekki skyldur til þess. En háttv. þm. (S. S.) sagði, að hann gerði það og að hans væri oft vitjað. Og auk þess hefir hann nú fengið viðurkenningu hjá þinginu, og ætti hann því síður að skorast undan því. — Af framangreindum ástæðum áleit nefndin ekki þörf á að stofna þarna að svo stöddu sjerstakt læknishjerað.