31.07.1919
Neðri deild: 22. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 437 í C-deild Alþingistíðinda. (3104)
72. mál, hundaskattur
Frsm. (Einar Árnason):
Frv. þetta fer fram á að hækka skatt á óþarfahundum upp í 100 kr. á ári.
Fjárhagsnefndin gat ekki orðið ásátt um að hækka skattinn svo mikið. Hefir hún því komið með brtt. um að hækka hann að eins upp í 50 kr. Það er þó ekki svo að skilja, að hún vilji ekki hafa háan skatt á þessum óþarfadýrum, því að hún telur þau hvorki nauðsynleg nje til þrifa.
En hún taldi rjett að taka dálítið tillit til þeirra breytinga, sem orðið hafa á verðgildi peninga síðan lögin um hundaskatt voru sett. Má nokkur rök færa fyrir því, að 50 kr. nú sje ekki miklu tilfinnanlegra gjald en 10 kr. árið 1890.
Jeg sje svo ekki ástæðu til að fara frekari orðum um þetta einfalda frv., fyr en þá ef mótmæli koma fram.