18.08.1919
Efri deild: 33. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í C-deild Alþingistíðinda. (3134)

72. mál, hundaskattur

Frsm. (Halldór Steinsson):

Þar sem brtt. á þgskj. 399 var ekki útbýtt fyr en nú á fundinum, hefir nefndin ekki getað átt fund um hana, og er mjer því ókunnugt um, hvernig nefndarmenn muni snúast gagnvart henni, enda eru þeir alveg óbundnir með atkvæði sín, hvað þessa tillögu snertir.