12.09.1919
Neðri deild: 62. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 496 í C-deild Alþingistíðinda. (3168)
149. mál, þingsköp Alþingis
Flm. (Einar Arnórsson:
Jeg vil að eins gera stutta athugasemd við það, sem hv. þm. Dala (B. J.) og fleiri hafa sagt, að þingræðurnar væru prentaðar til þess, að kjósendur gætu fylgst með í því, hversu fulltrúar þeirra kæmu fram. En þessu er ekki svona farið. í fyrsta lagi lesa sárfáir þingtíðindin, og í öðru lagi er fjöldi mála, þar sem alls ekki er hægt að sjá, hvernig þm. hafa hagað sjer. Til þess yrðu þeir annaðhvort að hafa skrifað undir nefndarálit, talað eða greitt atkvæði með nafnakalli. Nú hafa ekki allir þm., í öllum málum, gert eitthvað af þessu þrennu, og verður því framkoma þeirra alls ekki sjeð. En ef einhverjir þm. vilja sýna afstöðu sína í einhverju máli, þá geta þeir það altaf, þótt umræður sjeu ekki prentaðar, með því að krefjast nafnakalls.