12.09.1919
Neðri deild: 62. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 530 í C-deild Alþingistíðinda. (3220)

151. mál, heimild handa landsstjórninni til að kaupa hús

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg skal geta þess, í sambandi við ummæli hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), hvað jeg hefi átt við með „miðað við það verð, sem hús ganga kaupum og sölum.“ Jeg átti ekki við virðingarverð á húsum, heldur sanngjarnt verð, sem hús eru seld við á hverjum tíma yfirleitt. Jeg átti ekki heldur við braskaraverð.