13.09.1919
Neðri deild: 63. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í C-deild Alþingistíðinda. (3240)

137. mál, skógrækt

Pjetur Jónsson:

Jeg vil ekki fara í orðahnippingar við hv. þm. Dala. (B. J.), en eigi finst mjer till. hans til rökstuddrar dagskrár heppilega orðuð. — Aftur á móti get jeg fallist á till. hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.). Mjer þykir það undarlegt, að stjórnin kemur fram í þessu máli eins og henni sje ókunnugt um, hvernig því hagar til í raun og veru, og hefir það þó verið til umr. á hverju þingi um síðasta áratug, og hún því haft beint tilefni til að kynna sjer það, enda fengið nægar bendingar og fullákveðnar um það.