02.09.1919
Efri deild: 46. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 871 í C-deild Alþingistíðinda. (3412)
59. mál, bann gegn refaeldi
Guðmundur Ólafsson:
Jeg er nokkuð reikull í ráði á stundum, og get nú tæpast fengið af mjer að hamla því, að hv. stjórn fái til meðferðar þau mál, sem hún æskir eftir og treystir sjer til að ráða vel fram úr, eins og virðist vera um þetta refamál. Harðdrægni frv. kemur ekki fram gagnvart refaræktarmönnum, eins og hæstv. atvinnumálaráðherra (S. J.) hjelt, heldur gagnvart refunum, og það alveg á sama hátt og venja hefir verið til skamms tíma, því að þessar refauppeldisstofnanir hafa ekki staðið lengi, og viðskilnaður þeirra við fósturbörnin er nú ekki heldur alveg laus við harðdrægni. Hæstv. atvinnumálaráðherra (S. J.) láðist að benda á ,að hvaða leyti líkur sjeu til, að málið yrði betur undir næsta þing búið. en undir þetta. Jeg sje enga ástæðu til að búast við betri undirbúningi þá, en aftur fulla ástæðu til að hræðast, að málið tefji þingið jafnlengi frá öðrum nauðsynlegri störfum þá eins og nú. Þetta er tilfinningamál, eins og fram hefir komið, og þau eru altaf drjúg við umræður.