04.08.1919
Neðri deild: 24. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 875 í C-deild Alþingistíðinda. (3418)
108. mál, sala á prestssetrinu Hvanneyri og kirkjujörðinni Leyningi í Siglufirði
Jörundur Brynjólfsson:
Mjer hefir altaf verið lítið um það gefið að farga jörðum landssjóðs, eins og hv. þm. mun kunnugt. Og jeg vil að minsta kosti gera þá athugasemd við þetta frv., að fari svo, að jörðin verði seld kauptúninu, þá sje það gert með því skilyrði, að það fargi engu af landinu til einstakra manna, því reynslan er þegar búin að sýna, að slíkt er ekki til bóta fyrir bæjarfjelögin. Þetta vil jeg taka fram til athugunar fyrir hv. nefnd, sem með málið á að fara.