21.07.1919
Efri deild: 12. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 986 í C-deild Alþingistíðinda. (3526)
36. mál, útflutningsgjald af síld
Magnús Torfason:
Vil að eins slá því föstu, að hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) þykist vera að leita jafnvægis í skattamálum landsins.
Stend fast við það, að hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) fór þeim orðum í hv. Nd., að hann óskaði þess, að ekkert yrði gert, er gæti orðið þess valdandi, að frv. stjórnarinnar næði ekki fram að ganga. Jeg tók vel eftir þessu, og varð hlessa á. Það var óþarft fyrir hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) að lýsa yfir þessu; hann átti víst, að brtt. yrðu drepnar.
Jeg hefi ekki kvartað undan tekjuskattinum; tel hann rjettlátan skatt. En hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) verður að gæta þess, að hjeruðin þurfa líka að lifa. Auðnum, sem síldin færir einstökum mönnum, fylgja talsverð þyngsli fyrir hjeruðin. því ætti ríkissjóður ekki að tæma gjaldþol þessara manna. Jeg vil nefna það til dæmis, að 1916 fóru tekjurnar af síldarútgerðinni á Ísafirði í landssjóð, en þyngslin, sem hún hafði í för með sjer, komu niður á bæjarfjelaginu.
Hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) vildi kenna Nd. um titil frv., og skal jeg játa, að fleiri eru syndugir en hann. En jeg vil skjóta því fram, að skrifstofustjóri hans er formaður fjárhagsnefndar Nd., og dettur mjer ekki í hug, að hann hafi breytt fyrirsögn frv. án þess að ráðfæra sig um það við hann. (Fjármálaráðh.: Sem formaður fjárhagsnefndar Nd. er hann ekki undirmaður minn).