08.07.1919
Neðri deild: 4. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 661 í B-deild Alþingistíðinda. (361)
32. mál, sala á hrossum til útlanda
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) tók það fram, að menn væntu, að verslunin yrði gefin alfrjáls. Svarið við þessari væntni hv. þm. er að mestu leyti komið undir vilja þessa hv. þings. Aðrar ástæður heldur en þær, er þegar eru taldar, tel jeg rjett að bíði þar til hv. þm. Dala. (B. J.) hefir komið fram með fyrirspurnina, og verður hv. 2. þm. Árn. (E. A.) að taka á þolinmæðinni þangað til. Hins vegar tel jeg aðgerðir stjórnarinnar í þessu máli hafa verið mjög hagkvæmar og samkvæmt vilja landsmanna.