03.09.1919
Neðri deild: 53. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1187 í C-deild Alþingistíðinda. (3800)

133. mál, lestagjald af skipum

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

Jeg skal taka það fram fyrir hönd fjárhagsnefndar, að hún hefir gengið inn á brtt. á þgskj. 536, frá hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.), um að lágmarkið verði 30 smálestir.

Sje jeg svo ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta mál.