13.09.1919
Efri deild: 55. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1208 í C-deild Alþingistíðinda. (3850)

61. mál, skipun læknishéraða o. fl. (Kjalarneshérað)

Kristinn Daníelsson:

Jeg þakka hv. nefnd fyrir meðferð frv. og meðmæli, svo langt sem þau ná. Jeg vil ekki þreyta hv. deild með lýsingu á ástæðum fyrir þessu frv., með því, að jeg hefi oft látið hana í tje áður, enda hefir hv. frsm. (H. St.) lýst nauðsyn frv. mætavel. — Vona jeg að eins, að frv. verði látið sæta sömu meðferðar sem frv. næst á undan.