01.09.1919
Neðri deild: 52. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1223 í C-deild Alþingistíðinda. (3867)

52. mál, skipun læknishéraða o. fl. (Bakkahérað)

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg verð að segja, að ef hv. deild ætlar sjer ekki að stofna þetta læknishjerað, þá skil jeg ekki, hvernig hún ætlar sjer að fara að samþ. það við þessa umr., þar eð hv. meiri hluti ræður frá, að það verði samþykt. Jeg vil því leyfa mjer að fara fram á, að málið verði annaðhvort tekið út af dagskrá, eða þá að um það fari sem önnur mál.