11.09.1919
Neðri deild: 61. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1254 í C-deild Alþingistíðinda. (3911)
147. mál, lán til Flóaáveitunnar
Flm. (Sigurður Sigurðsson):
Jeg ætla að lýsa því yfir, að þetta, sem hæstv. forsætisráðherra (J. M.) sagði nú, er bygt á algerðum misskilningi á till., eða það er útúrsnúningur hjá honum, eða annað verra. Till. losar landssjóð, eða stjórn, ekki við neinar skyldur, heldur herðir á stjórninni að uppfylla þær skyldur, sem lögin um Flóaáveituna leggja henni á herðar. Það er ekki vanþörf á að minna stjórnina á þetta með till., því satt að segja hefir hún verið furðu afskifta- og afrekalaus í málinu, nema þetta, að hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) leitaði eftir að fá lán í útlöndum til þessa umrædda verks, en árangurslaust.