05.08.1919
Neðri deild: 25. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1278 í C-deild Alþingistíðinda. (3922)
78. mál, rekstur sýslumannsembættisins í Árnessýslu
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Hæstv. forsætisráðh. (J. M.) hefir rjettilega tekið fram ástæður fyrir því, sem skrifað stendur í fyrsta kap. píslarsögu þeirrar, sem nú er verið að ræða um. Það er rjett, að jeg sá enga ástæðu til að verða ekki við þeirri ósk Guðmundar Eggerz, að Páli Jónsson væri löggiltur fulltrúi hans í Árnessýslu, það er að segja eins og ósk þessi kom fram í fyrstu, þar sem hann hefir tekið lögfræðispróf og auk þess staðið á skrá sem umsækjandi um embætti hjer. Í viðtali við Guðmund Eggerz, þar sem við var staddur skrifstofustjóri dómsmálaskrifstofunnar, var gengið að því sem vísu, að Guðmundur Eggerz tæki sjálfur við embættisskjölum öllum af Magnúsi Gíslasyni og mætti á aðalfundi sýslunefndarinnar. Enn fremur var svo til ætlast, að það væri að eins smærri mál, sem þessi fulltrúi hefði um að fjalla. Nú hefir því verið skotið fram, af háttv. 2. þm. Árn. (E. A.), að þessa daga hafi Guðmundur Eggerz verið lasinn. (E. A.: Páll Jónsson segir svo frá). Það er og rjett, eða svo hefir Guðmundur Eggerz sagt mjer. Hann kemur einn dag upp í dómsmáladeildina til mín, og er þá skrifstofustjóri þar viðstaddur. Við látum í ljós, að við viljum ekki, að neinn annar taki við skjölunum en hann. Hann kvaðst þá vera lasinn. En þá stingum við upp á því, til málamiðlunar, að hann fari austur, þegar hann sje orðinn frískur, og taki við af Magnúsi Gíslasyni. En þetta neitar hann að gera. Þar með var fallin burtu „forudsætningin“ fyrir löggildingu Páls sem fulltrúa, og var auðsjeð, að ætlast var til, að Páll gegndi embættinu á eigin ábyrgð.
Hann mæltist til þess, Guðmundur Eggerz, að Páll væri látinn óáreittur af hálfu stjórnarinnar.
Svona liggur í máli þessu. Stjórnarráðið hafði ekkert út á manninn að setja, en þegar ekki var fullnægt skilyrði því, sem sett var, þá var formlega rjett að afturkalla fulltrúaumboðið.
Jeg sje því ekki, að hjer sje um mikið að vjela, hvort heldur formlega eða efnislega sjeð. Þar sem sá maður, sem stjórnarráðið útvegaði og sendi austur eftir þetta, hefir að allra dómi reynst mjög vel. Jeg hefi sjálfur nýlega verið eystra, og heyrði honum hvarvetna borið besta orð.