14.08.1919
Efri deild: 30. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 907 í B-deild Alþingistíðinda. (614)

30. mál, löggæsla við fiskveiðar fyrir utan landhelgi

Frsm. (Karl Einarsson):

Mjer virðist ekki ástæða til að taka neitt sjerstaklega fram um þetta frv., fram yfir það, sem stendur í athugasemdum stjórnarinnar. Jeg leyfi mjer að vísa til þeirra, og vil mælast til þess, fyrir hönd sjávarútvegsnefndar, að hv. deild samþ. frv. óbr.