05.08.1919
Neðri deild: 25. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 993 í B-deild Alþingistíðinda. (759)

3. mál, fjáraukalög 1918 og 1919

Forsætisráðherra (J. M):

Jeg er þakklátur hv. fjárveitinganefnd fyrir góðar undirtektir hennar undir tillögur stjórnarinnar, og þá sjerstaklega fyrir það, sem heyrir undir mína deild. Jeg hefi engu að bæta við ræðu hv. frsm. (M. P.) um þau erindi, er undir mína stjórnardeild heyra og sje því ekki ástæðu til að fara að endurtaka það, sem hann sagði.