15.08.1919
Efri deild: 31. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1019 í B-deild Alþingistíðinda. (789)

3. mál, fjáraukalög 1918 og 1919

Forseti:

Jeg vil láta þess getið í eitt skifti fyrir öll, að þegar þeir hæstv. ráðherrar, sem sæti eiga í þessari hv. deild, þurfa að vera viðstaddir umr. um eitthvert mál í hv. Nd., álít jeg, að hv. Nd. eigi að fresta því máli, svo þeir geti verið við atkvgr. hjer, og þannig gegnt skyldu sinni, en ekki hv. Ed.