01.09.1919
Neðri deild: 52. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1031 í B-deild Alþingistíðinda. (803)

3. mál, fjáraukalög 1918 og 1919

Pjetur Jónsson:

Jeg skal taka það fram um þessa brtt., um uppbótina til dýralækna, að jeg var henni hlyntur, en hins vegar finst mjer það ekki geta komið til mála að senda frv. aftur til Ed. að eins vegna hennar. En ef komið væri með samskonar till. í sambandi við fjárlögin, mundi jeg verða henni fylgjandi.