30.08.1919
Neðri deild: 50. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1034 í B-deild Alþingistíðinda. (811)

13. mál, Íslandsbanka leyft að auka seðlaupphæð

Forsætisráðherra (J. M.):

Því miður er jeg ekki sá rjetti ráðherra til að svara þessu, en þar sem atvinnumálaráðh. (S. J.) er ekki viðstaddur, get jeg gefið þær upplýsingar, að þar sem það er ekki víst, að þingið komi aftur saman fyrir vorið 1920, taldi stjórnin æskilegt að hafa heimildina frá þessu þingi. Og fái hún hana nú, má ganga að því vísu, að fresturinn verði nógu langur til þess, að næsta væntanlegt þing geti tekið málið til betri athugunar.